|
|
06.10.2005 10:31:29 / sykur
Er ekki spurning um að jarða þetta?
Nei bara spyr!!!
»
20.09.2005 13:19:50 / sykur
Langaði að henda inn nokkrum línum þar sem ég er stödd í
tíma sem er ekki sá allra skemmtilegasti.
- Það vita allir hvað það er gott að vera á Akureyri
- Boltinn er búinn og við tekur ræktin, get ekki beðið...
- Skólinn er fínn
- Finnst að allar vinkonur mínar eigi að flytja norður, sakna
þeirra sem eru í borginni ógurlega!
- Er orðin 23 og viku meira, úff!
Veit að þessi færsla var frekar aum en svona er það....langar í
lokin að henda fram spurningu til matarklúbbsins, gengur ekkert með
nýju síðuna?
Þóra
»
02.09.2005 11:46:40 / sykur
...Það er enginn til að bjóða okkur í óvissuferð í
þjóðmynjasafnið, enginn til að kúra með, enginn til að bjóða okkur
í hrökkbrauð og kotasælu með kerti og rómó...!!!
....Við söknum þín, koddu aftur til okkar, 
Kveðja, frá sætu sykurpúðunum þínum í suðrinu!!!!

»
20.05.2005 00:16:59 / sykur
Jæja alltaf sömu helvítis vonbrigðin með þessa Eurovision
keppni. Þessi samfestingur var eins og hún hefði fengið hann
lánaðan í búningarsafni spaugstofunnar og svo voru dasgellurnar
fáránlegar. Ég ætla ekkert að skafa af því hér mér fannst þessi
dans og þegar þær lágu þarna bröltandi um á gólfinu ekki vera að
gera sig, gat þeim ekki dottið eitthvað annað move í
hug.  
Við stelpurnar vorum ekki sáttar með atriðið en fannst samt bara
11 lög geta farið áfram svo við vonuðum að Selma væri ein
af þeim 10 sem kæmumst áfram. Við reyndum hafa rétt fyrir okkur með
helmingin af lögunum.  Og vorum í algjöru
sjokki, því vorum orðnar svo spentar að sjá hvort Selma yrði ekki í
skárra dressi á aðalkeppninni.
Já fyst lög geta farið áfram þar sem einhverjar hænur stripplast
um á brókinni og enda svo í splitti, komast áfram þá er þetta bara
ekki keppni sem verðugt er að taka þátt í.
Noregur og Danmörk voru með yfirbuða flottustu lögin fannst mér
og svo voru nokkur önnur okey en ég man ekki hvaðan þau voru.
Alltaf verður maður jafn svekktur því maður gerir svo miklar
kröfur til Íslands í þessari keppni og kemur svo alltaf á óvart
hvað þetta gengur eitthvað brösulega hjá okkur. Já ég spáði meira
að segja Jónsa 3 sæti minnir mig í fyrra.Nú spáði ég Selmu 2 sæti
og á eflaust eftir að spá næsta framlægi fysta sæti  
Þrátt fyrir þetta var kvöldið frábært. Nanna, Sigga og Anna
Friðrika komu til okkar Elmars í mat. Ég var með steikta ýsu í dion
sinnepi og sesamfræjum og svo með sætar karteflur með púðursykri,
spesial K og kókos með. Sigga kom svo með frábært
sallat, Nanna með gos og Anna snakk svo þetta var alveg
brilliant. Þetta var alveg geggað gott svo stelpurnar báðu
allar um uppskriftina og ég set hana inn seinna annars er þetta
alveg hryllilega einfalt.
Svo komu Helga Björg, Inga Dís og Pála til okkar um kvöldið og
Þóra P mætti seint um kvöldið, öllum að óvörum þar sem hún átti að
vera stödd á Akureyri en þið þekki Þóru hún er orðin of sein að
skila sér heim í hagan.
Takk stelpur fyrir frábært kvöld
Kveðja Eyrún Gígja
»
17.05.2005 22:50:52 / sykur
.....að pakka
Hef mikið verið að spá í það að láta bera mig út...er ekki öruggt
að þeir pakka þá fyrir mann?
Frá því síðast hefur eitthvað ægilega mikið drifið á daga mína,
er gift, á von á mínu fyrsta barni, var að kaupa mér skutbíl....nei
nei lélegt grín. Hins vegar hef ég fra voða mörgu að segja og veit
ekki hvar ég á að byrja. það helsta er:
- Prófin eru búin og eru því fortíð...ekkert nema gott um það að
segja.
- Helgin er búin sem er sorglegt.
- Ég er ekki byrjuð að æfa og fyrsti leikur er á fimmtudag eða
laugardag....allir eru í fínu formi..lalala!!!
- Er á norðurleið og mun dvelja þar í 80 daga, með hléum...ekki
að ég sé að telja...alls ekki
En eins og við var að búast var kíkt AÐEINS á
ölstofur borgarinnar og nokkur stepp tekin svona í tilefni
prófloka. Verslunnarmannahelgin var tekin á þetta og farið var út
fös, lau og sun.... konungleg skemmtun alveg hreint. Ætla að henda
bráðlega inn myndum af því og þær munu tala sínu mali
Tók upp vinskap minn við euro kortið mitt um helgina og keypti
mér leðurstígvel og annan ákaflega NAUÐSYNLEGAN
búnað til ölstofu heimsókna. Þegar samviskubitið og eitt stykki
taugaáfall voru í þann mund að koma í heimsókn áttaði ég mig á þvi
að þetta væri nú í lagi.....maður fer ekki á veiðar án
öngla eða? Þessi setning gerir það að verkum að ég get
fjárfest í flík fyrir hvert djamm...reyndar mundu einhverjir segja
að þetta væri afar léleg fjárfesting, en hvað um það, kunna konur
yfirleitt að fjárfesta gáfulega...ég bara spyr?...nei þetta var
ljótt og ákveð ég því að draga þetta til baka þar sem að ég þykist
nú eiga eina eða tvær vinkonur sem kenndar eru við rauðann sokk eða
sokkabuxur, því er betra að halda sig á mottunni í þessum
efnum.
Ég veit að maður á ekki að segja frá öllu og þá síst því sem að
gæti komið í veg fyrir það að fólk teldi mann eðlilega. En þar sem
að ég er löngu búin að glata þeim virðulega titli að vera eðlileg
hér á síðunni þá læt ég þetta flakka. Þannig er mál með vexti að ég
fór heim á laugardaginn frá Sonju og Gumma til þess að fá mér lúr
eftir amstur dagsins, með í þeirri för voru heill hellingur af
pokum, í einum pokanum leyndist síminn hennar Sonju. Þegar ég kom
auga á hann hugsaði ég með mér að best væri að sendi henni sms og
lata hana vita af því. Ég sest við tölvuna og skrifa eftirfarandi
sms:
Hæ vildi bara láta þig vita að ég er með símann þinn.
kem með hann á eftir Hvert sendi ég smsið? jú í
simann hennar Sonju sem var frammi á eldhusbekknum mínum. Þegar ég
hafði áttað mig á heimsku minni fannst mér það svo fyndið að ég
ákvað að hringja í sonju. Vegna þess að það er alltaf miklu
skemmtilegra að segja frá í máli heldur en að skrifa, tek ég upp
símann og hringji, um leið heyri ég að sonju sími hringir
frammi....hugsunin sem kom upp í huga mér þá var sú að hver í
andskotanum væri að hringja í sonju, ég geng fram og lít á símann
hennar, ennþá með símann minn við eyrað og hvað stendur,
Tóta gsm!
Hvað týndi ég eiginlega mörgum heilasellum kvöldið áður...úff!
Æji ég er ekki beint í gírnum eins og er til þess að fara að
steypa hér svo að ég læt þetta gott heita í bili. Ekki það að ég
nenni að fara að pakka.....en því fyrr sem ég klára þetta því fyrr
fer ég norður, hef ekki gert upp hug minn hvort það er tilhlökknu
eða ekki?
Yfir og út
Þóra
»
11.05.2005 18:54:57 / sykur
»
09.05.2005 17:52:12 / sykur
Hvernig endaði aftur sagan með Palla sem var
einn í heiminum?
Spennan magnast og eftir örfáa daga verður skundað
á ölstofurnar og verður þá ekki lítið stappað. Já lesendur ég mun
sletta ærlega úr klaufunum á laugardaginn og þá má búast við
feitum sögum sem ekkert verður af skafið. Hlakka til að sjá ykkur
öll
Svo vil ég koma þvi á framfæri við þá sem að þykir
vænt um mig hvað það er sem að er á toppi óskalistans míns þessa
stundina

Hvernig væri nú að sýna væntumþykju ykkar í verki
og festa kaup á einu stykki til að kæta mig, og ekki slæ ég
hendinni á móti 2 stykkjum.
Að lokum þetta hér:
Með fyrirfram þökk
Þóra
»
04.05.2005 19:13:59 / sykur
»
01.05.2005 13:01:26 / sykur
Nýjustu fréttir eru það að ég er reddy í ljósin
á ný. Já batamerki hafa komið fram og lít ég ekki lengur út eins
og vel brunnin svínasteik 
Ákvað að setja inn smá spurningar og endilega látið
vita í commentum hvernig gekk
"
Take">http://www.quizyourfriends.com/takequiz.php?quizname=050501085456-868577">Take
Gangi ykkur vel
Þóra
»
27.04.2005 17:28:39 / sykur
Kröftugt Hraðgræðandi alhliða sárasmyrsl.
Kælandi eftir sólbað. Hindrar, dregur úr og græðir sólbruna. Já
lesendur góðir ég var ekki að koma frá útlöndum heldur fór ég
bara í stutta ferð niður á lækjartorg í gær. Það vill bara
þannig til að ég fer sjaldan sem aldrei í ljós, hins vegar er
mjög gott að fara i ljós annað slagið þegar maður er með
vöðvabólgu og þess háttar og svo er það afar slakandi.´Verð
einnig að viðurkenna að ég lifi í smá blekkingar heim um að einn
daginn verði ég brún, hingað til hef ég alltaf verið jafn hissa
þegar ég kem úr ljósabekknum, nei sko litur í formi frekna,
fleiri freknur er það hægt ég bara spyr, jújú það virðist
allt vera hægt í þessum heimi. En ja gerði eina enn atlögu til
þess að verða brún í gær. Þegar líða tók á ljósatímann var
handklæðið sett yfir höfuðið, þegar ennþá lengra leið var mér
farið að líða eins og ég sæti á vel heitum ofni og ákvað því að
segja skilið við bekkinn. jæja þessi ljósaferð hafði bara
heppnast svona afbragðsvel og svo kostaði hún nánast ekkert.
Ferðinni var næst haldið upp í skóla, þar settist ég á minn
mjúka rass sem mig hefur alltaf þótt afar þægilegt að tilla mér
á. þegar líða tók á kvöldið/nóttina var það bara ekkert þægilegt
lengur og ég fór að athuga hvað var um að vera, ja viti
men bleikar rasskinnar með rauðu ívafi...óhh hefur alltaf
fundist rautt fara mér svo ílla . Já ja ekki það flottasta sem
ég hef séð! þegar sviðinn var orðinn nánast óbærilegur þá ákvað
ég að koma mér heim. þegar heim var komið var strippað og
afrakstur ljósanna skoðaður. Það er skemmst frá því að segja að
ég þurfti að styðja mig við hurðina úr hlátri, gæti ósakað þess
að það hefði einhver verið þarna til að sjá þetta.....hehe! ja
rauður magi og rauðar rasskinnar og hvíta rendur á
hliðunum....óborgarlega fyndið! en ég hafði nú ekki áhyggjur af
því að sofna ekki neinei því ég hef þann eignleika að ef ég fer
í lárétta stöðu er ég farin að hrjóta. Í nótt var hins vegar
annað upp i á teningnum, besta staðan var á fjórum fótum, en
eins og þið lesendur vitið þá er eiginlega bara ómögulegt að
sofa á fjórum fótum svo að það var aðeins blundað í hinum
afbrigðilegustu stellingum. Já nú ilma bara heimkynni mín eins
og brunarústir, gaman af því!
jæja langaði bara að deila þessari átakasögu með
ykkur. Það sem meira er að ég á 4 tíma eftir af korti sem ég keypti
mér í gær, svo ætli ég fari ekki aftur á morgun...hver veit!
  
cja og takk fyrir allar kveðjurnar eftir síðasta
pistil alveg magnað
Bleika Þóra
»
24.04.2005 23:33:59 / sykur
Nú er ég búin að byrgja mig upp af allskonar
birgðum fyrir komandi prófatíð og það eina sem er eftir er að
læra. Já það er víst tilgangurinn með þessu öllu að læra og taka
svo próf, sem að eru að mínu mati lélegur mælikvarði á
kunnáttu.
Já gaf mér sjálfri sumargjöf, hvorki meira né minna
en sippuband. Nú verður sko sippað á fullu, gaman gaman. Reyndar
sagði Eyrún mér að hún ætti líka jógadýnu, þá rann það upp fyrir
mér að það er víst ekki nóg að eiga hlutina því það þarf víst að
nota þá. Jæja við sjáum til hvernig það fer, það hlýtur að vera
fyrsta skrefið að eignast sippubandið
Nú get ég sagt að ég hafi upplifað eitthvað slæmt,
ójá! Það er nefninlega þannig að eftir langa bið og mikla
tilhlökkun höfðum ég og Sonja ákveðið að á föstudaginn yrði ræktin
og GUFAN heimsótt. Þvílikur spenningur sem að var fyrir gufunni.
Jæja við ákváðum að eyða meiri tíma í gufuna en ræktina og drifum
okkur því niður í gufuna, þegar niður var komið byrjuðum við að
henda af okkur fötunum, á meðan á þeirri aðgerð stóð heyrðum við
raddir..ekki að handan heldur frá gufunni. Tók ég þessa líka
snilldar ákvörðun að líta inn ganginn. Ég mun seint bíða þess bætur
að hafa litið inn, sú sýn sem ég sá þar var ekki sú fegursta. Hópur
að berrössuðum eldri körlum sem voru ekkert að fela neitt. Sonja
var eins og elding aftur í fötin, á meðan ég tók saman dótið mitt
gengu þeir hver á fætur öðrum fram hjá okkur og það var greinilegt
að þeir skömmuðust sín ekki fyrir neitt, því að ekki voru þeir að
hylja krumpu"bíbb" og slappa rassinnn. Allt til sýnis! Já þetta
voru ekki bara einhverjir Jónar út í bæ, nei þetta voru prófessorar
við Háskóla Íslands. Já eins gott að maður lendi ekki hjá þessum
köllum í tíma næst.....því sonja hafði orð á því að hætta væri þá á
myndskreytingum....hehe....jukk! En það má líka bæta við hérna að
nú er kominn sunnudagur og ég hef ekki sofið síðan á föstudag við
ótta við það eitt að berir gamlir karlar elti mig í draumaheimi
=martröð
Hvað finnst fólki um það að það sé það sem að það
borðar? sko þessi setning var sögð við mig í skólanum í síðustu
viku. Ég hef eiginlega ekki náð að henda þessari hugsun úr huga
mínum þar sem að ég er sífellt að reyna að mynda mér skoðun um það
hvort hún eigi rétt á sér. Sá sem segir þetta við mig er nefninlega
að stórmóðga mig, ég er nú ekki beint fræg fyrir hollustu. Já hvað
finnst ykkur? Ég er ekki sátt með að fólk sé að segja þetta, hvað
borðar þá þetta fólk sem að er að segja þetta?
Er það eðlilegt þegar prófatíð er að byrja að hugur
manns sé komin það langt að maður er farin að skipuleggja djammið
eftir prófin, fötin, matinn hvern á að hitta og jafnvel búin að
upplifa kvöldið í dagdraumi yfir skólabókunum? plís segjið mér að
þetta sé eðlilegt!
Að lokum yrði ég afar þakklát öllum þeim sem myndu
nenna að henda í mig einu stykki kveðju eða svo hérna, þar sem að
maður er nú dálitið einmanna þessa dagana lokaður inn í hellinum
sínum í félagsskap skólabókanna. Þessi loka skrif mín gera það að
verkum að ef að enginn kvittar þá verður það pínlegt en ég treysti
því að ég eigi einhverja vini sem að munu bjarga mér frá þessum
pínlegheitum....eða vonandi
Þóra 
»
21.04.2005 10:11:15 / sykur
...pirring!
Ég ætla þó að byrja á því að óska öllum gleðilegs
sumars! Einnig langar mig að vita hvað fólkið fékk í sumargjöf?
Var að spila um helgina og viti men haldiði ekki
bara að ég hafi skorað, þeir sem mig þekkja vita að þetta er ekki
daglegur viðburður í boltanum En já þetta var án efa eitt
ljótasta mark mitt á ferlinum....en ágætt að vera búin að ljúka því
af! Þar sem ég var að fara minn daglega bloggrúnt kom ég við á ksí
síðunni og var að skoða úrslit leikja og svona, eða bara sjá nafnið
mitt standa inn í dálknum um markaskorara, sem eins og áður sagði
gerist ekki oft. Það sem ég sá þar varð bara til þess að ég þurfti
næstum því að leggja mig. Já já haldiði ekki bara að það hafi verið
búið að gefa áslaugu varnarköggli sem að fór aðeins 3 fram yfir
miðju í leiknum markið mitt. Sko þó ég sé gjafmild þá er það bara
upp að vissu marki, mörk eru ekki inn í því Það að skrifa niður
númer þess sem skoraði er auðveldara en að reikna 1+1
dæmi......arrrgg!!! svo ef að fólk er eitthvað að gefa
öðrum eitthvað sem að það ekki á þá er það BANNAÐ!
Já best ég skrifi smá um kögra hérna til dyggra
aðdáenda. Hann er bara hress og biður að heilsa öllum konum og
körlum. Kögrið verður sent í viðgerð í prófunum þar sem að búið var
að hanga svo mikið í því að ekki var sjón að sjá það.
Svo vil ég minna á commentin og gestabókina.
Ætlum að taka okkur á og byrja að skrifa á fullum krafti, enda
stutt í ölstofudansana...13 mai...íha!
»
19.04.2005 20:26:53 / sykur
og rakst þá á þetta....!

..............vúpppsííí...!!! Þessi hefur dottið
aðeins of oft á rasssinnnn
»
17.04.2005 23:03:27 / sykur
Jújú..flensan sem ég er
búin að reyna forðast eins og heitan eldinn náði mér loks á
föstudagskvöldið, og heltók sigguna alla helgina

Kvef, hálsbólga, hiti
og hausverkur, ekki spes það, og ekki á besta tíma
heldur. Ég
sem ætlaði að vera svo súper dugleg, klára að
svara gömlum prófum og lesa slatta, en eitthvað minna varð nú úr
því. Hef engan tíma til að standa í svona veikindum því það eru jú
ca 11 dagar í fyrsta próf og ég þarf að nýta allan þann tíma sem ég
hef ...og svo leiðist mér líka mjög að vera lasin og ætla að
mæta í skólann á morgun því ég nenni ekki að vera meira
heima.
Annars er bara
brjálað rok og rigning úti, og þá datt mér
nú ansi fyndið samtal í hug sem ég og Eyrún áttum ekki alls
fyrir löngu. Þannig er mál með vexti fyrir ykkur sem ekki
vitið þá bý ég á efstu hæð í blokk, 7. hæð og er með mjög
stóran glugga, og þar eru 2 litlir opnanlegir
gluggar. Og um daginn þá vorum við Eyrún
eitthvað að spjalla og fórum að tala um það hvað okkur þætti
fáránlegt að það eru svona krókar á gluggonum hjá mér, æji
þið vitið, svona sitt hvorum megin. Við hneyksluðumst þvílíkt
á þessu því það færi nú enginn að brjótast inn á 7. hæð í
blokk. Svo fór Eyrún eitthvað að segja
Elmari frá þessu og hann bara hló og hló að þessari heimsku í
okkur, því þessir krókar væru nú ekki til að forðast þjófa
heldur til að þétta gluggana í roki...*stupid
við*... Ég sem hef aldrei notað þessa
blessuðu króka í þessi 2 1/2 ár sem ég hef verið hér, samt er
alltaf rok hér í Reykjavík. En allaveg þá festi ég þessa
króka á áðan og þá er bara að bíða og sjá hvort það heyrist
minna í rokinu í nótt 
Jæja, læt
þetta duga í bili, Kveðja, þangað til næst, Sigga
»
15.04.2005 19:43:22 / sykur
Já þá er ég nýkomin heim úr afmælisgjöfinni
minni frá Þóru. Þóra gaf okkur Siggu neflilega óvissuferð í
afmælisgjöf og Sonja var líka með okkur og auðvitað Aníta Mist
og Ronja sæta. Það var mæting í höllina hennar Þóru klukkan 1500
svo var haldið af stað í fullkomri óvissu, við nálguðumst óðum
Háskólann og liðið byrjaði að giska á fysta áfanga staðinn.
Ég æli því út úr mér að ef það væri Miðvikudagur þá vissi
ég hvert við værum að fara því það væri frítt í þjóðmynjasafnið
á miðvikudögum, því Þóra myndi nú ekki tíma að bjóða okkur
annars. En vitir menn, mér til mikillar skammar þá þurfti
ég að éta þessi orð upp aftur því Þóra tók þetta auðvitað
með stæl og bauð liðinu á þjóðmynjasafnið. Við skoðuðum það í
krók og kima, rosa flott allt saman og þá sérstaklega ísklenska
hönnunar sýningin, gegguð föt og alskonar list, og hönnun .
  
Eftir að Þóra hafði slegið hraðamet í
íslandspúslinu og öðrum leikjum í barnaherberginu þá fórum við
að hugsa um að leggja af stað á næsta áfangastað , þar sem það
var alveg að líða yfir frú Sigríði af hungri, en áður en við fórum
út þá ætluðum við allar að fara í lyftuna en hún bara hreyfðist
ekki , Sigga fékk nett panic-þar sem hún er geggað lyftuhrædd.
----Þegar við vorum með skólanum á hólum í Hjaltadal þá
grenntist Sigga svo um munaði þar sem við gistum á 4
hæð og Sigga treysti ekki lyftunni heldur þrammaði hún 1.000
tröppur í alla matartíma og kennslutíma sem voru á hæðunum fyrir
neðan oft á dag  
En nóg um það við komumst sem sagt að því að
þessi lyfta gat bara farið niður um eina hæð og svo þurftum við að
fara í aðra lyftu á næstu hæð niður á þá neðstu-svo lítið spes
verð ég að segja 
Planið fyrir daginn var að sögn Þóru gert í gær og
í þeirri sólar og suðrænu stemmingu sem ríkti þá, við áttum
sem sagt að fara á línuskautum út í Nauthólsvík og borða nestið það
á teppi og með palst glös. En vegna þess að það var brjálað hvasst
og kallt að við fórum aftur í höllina hennar Þóru og snæddum þar
mjög gott neisti alveg eins og þóru er lagið með eftirrétt og allt
  Þóra kveikti líka á kertum svo það var rosa kósi
stemming verð ég að segja og ástarhreiðrið hennar Þóru klikkar
aldrei. Svo vorum við Sonja reknar út vegna þess að Kögri kallinn
hennar Þóru var að koma og hann var í nýjum kögurbuxum sem Þóra
ætalði að rífa hann úr um leið og hann kæmi(heyrði ég bara þegar ég
var að hlera símtalið á milli þeirra, sel það ekki dýrara en ég
keypti það) Allavega litlu snúllurnar okkar Sonju þurftu líka að
fara að komast heim til sín svo við vorum ekkert fúlar að fá ekki
að vera þarna þegar Kögri kæmi, vonandi fáum við bráðum að sjá
hann  
Takk Þóra fyrir frábæran dag, bið að heilsa
Kögra, gaman að hitta ykkur allar stelpur 
Þangað til næst
Kveðja Eyrún Gígja
»
Síður: 1 2 3 ... 6
|
|